Mánaðarleg millifærsla
Hægt er að leggja fyrir tiltekna upphæð á mánuði í sjóði eða á sparireikninga. Með mánaðarlegum kaupum í verðbréfasjóði, minnkar þú viðskiptakostnað og dregur úr sveiflum í ávöxtun í samanburði við staka fjárfestingu fyrir stærri upphæð.
Með reglubundnum sparnaði getur þú komið þér upp varasjóði eða sparað til lengri tíma á sparireikningi frá 500 kr. á mánuði eða byggt upp eignasafn með áskrift að sjóðum frá 5.000 kr. á mánuði. Veittur er 100% afsláttur af þóknun við reglubundin kaup í sjóðum.
Hægt er að skrá sig í reglubundinn sparnað í netbanka Landsbankans, í gegnum verðbréfaráðgjöf í síma 410 4040 eða með því að senda beiðni á verdbrefaradgjof@landsbankinn.is. Einnig er hægt að koma við í næsta útibúi Landsbankans.
Að spara með korti er skemmtileg og auðveld sparnaðarleið. Hver færsla er hækkuð um ákveðna upphæð eða upp í næstu 100, 500 eða 1.000 kr. Þú safnar líka Aukakrónum eða Vildarpunktum.
Nánar